Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 258/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 258/2023

Miðvikudaginn 11. október 2023

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 22. maí 2023, kærði B lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Reykjavíkurborgar á umsókn hennar um sértækt húsnæðisúrræði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 21. janúar 2015, sótti kærandi um sértækt húsnæðisúrræði hjá Reykjavíkurborg og var umsóknin samþykkt á biðlista í júní 2015. Kærandi bíður enn úthlutunar húsnæðis og kærir því drátt á afgreiðslu málsins, sbr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. maí 2023 og fullgilt umboð lögmanns barst 28. júní 2023. Með bréfi, dags. 30. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst úrskurðarnefndinni 10. ágúst 2023 og var hún kynnt umboðsmanni kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. ágúst 2023. Umboðsmanni kæranda var veittur frestur til að skila athugasemdum vegna greinargerðar og bárust þær 11. september 2023. Athugasemdirnar voru kynntar Reykjavíkurborg með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. september 2023. Svar vegna athugasemda kæranda barst frá Reykjavíkurborg 2. október 2023 og var það kynnt umboðsmanni kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. október 2023. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála er greint frá því að móðir kæranda hafi með umsókn í október 2008 sótt um sértækt húsnæðisúrræði fyrir dóttur sína hjá svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra sem hafi verið rekin af íslenska ríkinu. Í janúar 2015, þegar svæðisskrifstofan hafi verið lögð niður, hafi umsóknin verið færð yfir til Reykjavíkurborgar og kærandi hafi verið samþykkt á biðlista í febrúar 2015. Kærandi bíði enn úthlutunar húsnæðis og kæri því drátt á afgreiðslu, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/993. Þess sé krafist að kærandi fái samþykkta þjónustu svo fljótt sem auðið sé.

Tekið er fram að móðir kæranda hafi fyrst sent inn umsókn um sértækt húsnæðisúrræði fyrir dóttur sína í október 2008, eða þegar dóttir hennar hafi verið 11 ára. Í janúar 2015, þegar svæðisskrifstofan hafi verið lögð niður, hafi umsóknin verið færð yfir til Reykjavíkurborgar og umsóknin hafi verið samþykkt á biðlista í febrúar 2015. Kærandi hafi orðið 18 ára gömul þann X 2015. Nú sjö og hálfu ári eftir að kærandi hafi orðið 18 ára sé hún enn á biðlista eftir búsetu.

Þess beri að geta að framangreindar dagsetningar um umsókn kæranda séu byggðar á upplýsingum frá félagsráðgjöfum þeirra mæðgna, sbr. meðfylgjandi tölvupóst, en erfiðlega hafi gengið að fá nákvæma dagsetningu á því hvenær umsókn hafi verið lögð inn og hvenær hún hafi verið samþykkt á biðlista.

Kærandi sé nú á 26. aldursári. Hún sé með genagalla sem valdi fötlun hennar. Hún sé með greindarskerðingu (40 stig), ADHD, sjónskerðingu, mótþróaröskun o.fl. Hún hafi fyrst farið í SIS mat fyrir mörgum árum en hafi aldrei fengið niðurstöður úr því. Hún hafi svo farið aftur í SIS mat á árunum 2020/2021 og verið upplýst munnlega um niðurstöður úr því mati.

Kærandi búi hjá móður sinni ásamt yngri systur sinni sem sé á X. aldursári. Kærandi fari í 10 sólarhringa á mánuði í skammtímavistun að C. Fyrir allnokkru hafi hún fengið samþykki fyrir aukinni vistun þar en bíði enn úthlutunar. Þess beri að geta að kærandi og móðir hennar fái litlar sem engar leiðbeiningar um það hvaða úrræði standi til boða á meðan kæranda hafi ekki verið úthlutað húsnæði, heldur þurfi þær að leita eftir því sjálfar.

Kærandi eigi það til að vera árásargjörn og hafi ítrekað ráðist á móður sína og systur. Þá hafi hún eyðilagt ýmsa muni á heimilinu, t.d. brotið hurðir. Faðir kæranda sé að mjög litlu leyti til staðar og álag á móður hennar og systur sé gríðarlegt. Í framhaldi af því að kærandi hafi ráðist á móður sína um jólin 2021 hafi móðir hennar lagt fram áverkavottorð hjá Reykjavíkurborg. Í framhaldi af því hafi hún fengið þær upplýsingar að umsókn kæranda hefði verið færð á neyðarstig. Þá hafi Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana, sem kærandi hafi verið hjá, ítrekað við Reykjavíkurborg hve nauðsynlegt það sé að hún fái húsnæði sem allra fyrst. Þrátt fyrir framangreint bóli enn ekkert á húsnæði fyrir kæranda og móðir hennar fái engar upplýsingar um það frá Reykjavíkurborg hvenær hún fái húsnæði úthlutað, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir þess efnis.

Samkvæmt 1. mgr. 9 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skuli ákvarðanir í málum teknar svo fljótt sem unnt sé. Þá sé kveðið á um það í 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga að þegar fyrirsjáanlegt sé að afgreiðsla máls muni tefjast beri að skýra aðila máls frá því. Þá skuli upplýsa um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Vísað sé til úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 274/2020 þar sem afgreiðsla Reykjavíkurborgar í sambærilegu máli hafi ekki verið talin í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga.

Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sé kveðið á um að fatlað fólk eigi rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem geri því kleift að búa á eigin heimili og stuðli að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Þá sé kveðið á um í 2. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga að fatlað fólk eigi rétt á því að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það búi, til jafns við aðra. Er samkvæmt ákvæðinu óheimilt að binda þjónustu við fatlað fólk því skilyrði að það búi í tilteknu búsetuformi.

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir skuli ákvörðun um að veita þjónustu tekin svo fljótt sem kostur sé. Sé ekki unnt að hefja þjónustu strax og umsókn sé samþykkt skuli tilkynna umsækjanda um ástæður þess og hvenær þjónustan verði veitt. Ef fyrirséð sé að þjónustan sem sótt hafi verið um geti ekki hafist innan þriggja mánaða frá samþykkt umsóknar skuli leiðbeina umsækjanda um þau úrræði sem hann hafi á biðtíma og aðra þjónustu sem sé í boði. Þá skuli veita honum aðra viðeigandi þjónustu á meðan beðið sé eftir að þjónustan sem hafi verið samþykkt hefjist.

Í 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk sé kveðið á um biðlista. Þar komi fram að hafi umsókn um húsnæðisúrræði samkvæmt reglugerðinni verið samþykkt en ljóst sé að ekki sé unnt að útvega það innan þriggja mánaða, skuli þá tilkynna umsækjanda um ástæður tafanna og hvenær fyrirhugað sé að húsnæðisúrræði geti verið tilbúið. Þá skuli setja umsókn á biðlista. Þegar umsækjanda sé tilkynnt um að hann sé kominn á biðlista skuli unnin áætlun um útvegun viðeigandi húsnæðisúrræðis og hvort og þá hvers konar annað úrræði standi umsækjanda til boða á biðtíma. Þá skuli sveitarfélag leggja biðlista eftir húsnæðisúrræðum til grundvallar við gerð húsnæðisáætlunar samkvæmt lögum um húsnæðismál.

Í 9. gr. reglugerðarinnar sé svo kveðið á um röðun á biðlista. Þar komi fram að raða skuli á biðlista eftir sömu sjónarmiðum og komi fram í matsviðmiðum sveitarfélaga. Sveitarfélög skuli kveða skýrt á um það í reglum sínum á hvaða matsviðmiðum skuli byggt, hvernig samþykktum umsóknum skuli forgangsraðað eftir þörf viðkomandi, lengd biðtíma eftir húsnæðisúrræði og öðrum þeim úrræðum sem standi til boða á biðtíma. Sveitarfélag skuli líta til sömu viðmiða og varðandi úthlutun á félagslegu húsnæði við mat á þörf og forgangi, þar með talið núverandi húsnæðisaðstöðu umsækjanda og hversu brýna þörf viðkomandi hafi fyrir viðeigandi húsnæðisúrræði. Í 10. gr. reglugerðarinnar sé svo kveðið á um að sveitarfélag skuli tryggja reglubundið samráð við umsækjanda á biðtíma. Umsækjandi skuli þá upplýstur um stöðu á biðlista, áætlaða lengd biðtíma og þau úrræði sem honum standi til boða á biðtímanum.

Líkt og að framan greini hafi umsókn kæranda um sértækt húsnæðisúrræði verið samþykkt á biðlista eftir húsnæði í febrúar 2015. Kærandi hafi svo orðið 18 ára þann X 2015. Síðan þá hafi kærandi og móðir hennar fengið litlar sem engar upplýsingar um það hvenær henni verði úthlutað húsnæði og virðist sem ekki sé unnið sérstaklega í húsnæðismálum hennar. Eins og fram hafi komið sé afar nauðsynlegt að kæranda verði úthlutað húsnæði sem allra fyrst. og það sé algjörlega óásættanlegt að hvorki hún né fjölskylda hennar hafi hugmynd um það hvenær til þess komi. Ekkert réttlæti bið um ókomna tíð án þess að fyrir liggi einhver áætlun í húsnæðismálum hennar og að hún sé upplýst um stöðu sína. Sveitarfélagið hafi ekki áætlað hvernig og hvenær leyst verði úr máli kæranda og því hafi afgreiðsla málsins dregist óhæfilega í skilningi 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga.

Með vísan til alls framangreinds sé þess krafist að kærandi fái samþykkta þjónustu svo fljótt sem auðið sé, eins og hún eigi rétt til.

Í athugasemdum kæranda er fullyrðingum Reykjavíkurborgar um að í málaskrá hafi verið færðir dagálar varðandi tíð samskipti ráðgjafa við móður kæranda vegna málsins, ýmist í formi viðtala, tölvupósta eða símtala, að móður kæranda hafi ítrekað verið sendir tölvupóstar þar sem ráðgjafi hafi reynt að upplýsa um stöðuna eins og unnt hafi verið hverju sinni, að kæranda og móður hennar hafi verið boðin viðtöl og fundir vegna málsins og að deildarstjóri á miðlægri skrifstofu velferðarsviðs í málaflokki fatlaðs fólks hafi oft setið þá fundi auk ráðgjafa í málinu, mótmælt harðlega, enda eigi þessar fullyrðingar sér enga stoð í gögnum málsins. Af gögnum málsins megi sjá að nær öll samskipti sem hafi átt sér stað vegna málsins sé vegna fyrirspurna móður kæranda og beiðni hennar um aðstoð. Þar megi einnig sjá að hún fái litlar sem engar upplýsingar um stöðu umsóknar kæranda og hvergi megi sjá áætlanir sveitarfélagsins um hvernig og hvenær verði leyst úr máli kæranda. Kærandi vilji vekja athygli á því að á fyrstu fimm árum hennar á biðlista sé einungis einn tölvupóstur varðandi málið í gögnum þess og það sé tölvupóstur frá móður kæranda þann 8. mars 2017 þar sem hún óski eftir ýmsum upplýsingum, þar á meðal hvað sé að frétta af umsókn kæranda, og svo í framhaldinu svar Reykjavíkurborgar við þeim tölvupósti. Þá hafi tveir fundir verið haldnir í framhaldi af slíkum fyrirspurnum móður kæranda þar sem upplýsingar hafi verið af afar skornum skammti. Þá sé það af og frá að halda því fram að framangreindur deildarstjóri á miðlægri skrifstofu velferðarsviðs í málaflokki fatlaðs fólki hafi „oft“ setið fundi auk ráðgjafa í málinu, enda hafi móðir kæranda einungis hitt hana tvisvar sinnum og kærandi aldrei. Með vísan til framangreinds sé ljóst að Reykjavíkurborg sé á engan hátt að uppfylla skyldu sína um virka upplýsingagjöf og að verið sé að vinna markvisst í að finna lausn á máli kæranda.

Í greinargerðinni komi fram að kærandi hafi á biðtíma fengið þjónustu frá Reykjavíkurborg í formi akstursþjónustu, stuðningsþjónustu (liðveislu), skammtímadvalar og ráðgjafar. Kærandi vilji í þessu sambandi vekja athygli á að hún hafi fengið stuðningsþjónustu (liðveislu) í janúar 2021, sbr. fylgigagn átta með greinargerð, eftir að hafa sjálf óskað eftir slíkri þjónustu, sbr. fylgigagn sjö með greinargerð, en þá hafi verið liðin sex ár frá því að hún hafi verið samþykkt á biðlista. Móðir kæranda hafi þá heyrt frá fólki í svipaðri stöðu að kærandi ætti rétt á slíkri þjónustu, enda fái þær mæðgur litlar sem engar leiðbeiningar um það frá Reykjavíkurborg hvaða úrræði standi til boða á meðan kæranda hafi ekki verið úthlutað húsnæði, heldur þurfi þær að leita eftir því sjálfar. Reykjavíkurborg hafi þannig með engu móti uppfyllt lagaskyldu sína samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk um að leiðbeina kæranda um þau úrræði sem hún hafi á biðtíma og aðra þjónustu sem sé í boði. Kærandi vilji einnig í þessu sambandi vekja athygli á að skammtímavistunin að C sé hugsuð fyrir börn til 18 ára aldurs. Kærandi sé nú á 26. aldursári og sé lang elst í C. Þar sem enga aðra vistun sé að fá sé hún á biðlista eftir aukinni vistun en bíði enn úthlutunar. Þá hafi kærandi nýtt sér akstursþjónustu sem rekin sé af Pant.

Í greinargerðinni komi einnig fram að fyrirhugað sé að senda bréf til umsækjenda um húsnæði fyrir fatlað fólk á næstu vikum þar sem fram komi hver staðan sé á umsókn viðkomandi umsækjanda með hliðsjón af uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk. Þá sé kveðið á um það að velferðarsvið Reykjavíkurborgar áskilji sér rétt til að framvísa slíku bréfi til úrskurðarnefndarinnar. Átta dögum eftir að greinargerðinni hafi verið skilað til úrskurðarnefndarinnar hafi slíkt bréf verið skrifað til kæranda, sbr. hjálagt skjal, en kærandi hafi aldrei fengið slíkt bréf sent til sín áður. Í því bréfi komi fram að þann 11. júní 2023 hafi 133 einstaklingar átt gilda umsókn um húsnæði fyrir fatlað fólk, þar af 22 einstaklingar í sama þjónustuflokki og kærandi. Þá sé kveðið á um að gert sé ráð fyrir að kærandi fái úthlutað húsnæði á árinu 2024 en svo fjölmargir fyrirvarar gerðir við það. Tímasetning bréfsins geti nú varla talist tilviljun, enda hafi kærandi, eins og áður hafi komið fram, aldrei á þeim rúmlega átta árum sem hún hafi verið á biðlista eftir húsnæði, fengið sambærilegt bréf sent til sín. Þá hafi hún aldrei áður verið upplýst um það hvenær sé gert ráð fyrir að hún fái úthlutað húsnæði.

Kærandi vilji að lokum vekja athygli á síðustu málsgrein þriðju efnisgreinar á bls. 2 í greinargerð velferðarráðs Reykjavíkurborgar, þar sem standi orðrétt:

„Kærandi var tekin inn í þjónustu teymisins í mars árið 2022 en í greinargerð frá teyminu frá apríl 2023 kemur fram að þó að kærandi hafi mætt vel gagnist meðferð ekki sem skyldi vegna aðstæðna á heimili hennar.“

Það sé þyngra en tárum taki að sú meðferð sem kærandi fái hjá Geðheilsuteymi taugaþroskana sé ekki að gagnast sem skyldi vegna aðstæðna á heimili hennar. Ekki nóg með að kærandi sé orðin alltof gömul til að búa hjá móður sinni og yngri systur, enda átta og hálft ár síðan umsókn hennar um húsnæði var samþykkt, umsókn hennar sé á neyðarstigi og að gífurlegt álag hvíli á öðru heimilisfólki, þá sé sú meðferð sem kærandi fái hjá Geðheilsuteymi taugaþroskana ekki að gagnast vegna heimilisaðstæðna.

Með vísan til alls framangreinds og þess sem fram komi í kæru, dags. 22. maí 2023, sé það ítrekað að kærandi fái samþykkta þjónustu svo fljótt sem auðið sé, eins og hún eigi rétt til. Í því sambandi sé vísað til úrskurðar nefndarinnar í máli nr. 274/2020 og dóm héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-2712/2020. Ekkert geti réttlætt bið um ókomna tíð án þess að fyrir liggi einhver áætlun í þeim efnum eða virk upplýsingagjöf til kæranda um hvenær hún megi vænta úthlutunar, og að húsnæði sé úthlutað með gegnsæjum hætti, svo kæranda sé staða sín ljós. Verður að gera þá kröfu að Reykjavíkurborg vinni markvisst að lausn í máli kæranda með einstaklingsbundinni áætlun og að gerðar séu ráðstafanir til að hún fái viðeigandi búsetuúrræði eins fljótt og unnt sé.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi sé X ára gömul kona sem sé greind með dæmigerða einhverfu, miðlungs þroskaskerðingu og ADHD. Hún hafi einnig greiningu frá erfðafræðilækni um genagalla sem felist í stökkbreytingu á geni. Kærandi búi hjá móður sinni ásamt yngri systur sinni sem sé á X. aldursári. Hún fari í skammtímadvöl að C daga í mánuði og sé að bíða eftir að fá fleiri daga þar. Kærandi eigi það til að vera árásargjörn og hafi ítrekað ráðist á móður sína og systur.

Kærandi eigi samþykkta umsókn um húsnæði fyrir fatlað fólk, dags. 21. janúar 2015. Það ár hafi hún orðið 18 ára og því unnt að samþykkja hana á biðlista eftir húsnæði. Mats- og þarfagreiningarlisti vegna umsóknar um húsnæði hafi verið uppfærður reglulega af ráðgjafa í samvinnu við umsækjanda. Þar komi meðal annars fram að lögð sé áhersla á mikilvægi þess að kærandi fái húsnæðisúrræði við hæfi og ítrekað hafi verið að hún hefði verið á biðlista eftir húsnæði síðan árið 2015. Lögð hafi verið áhersla á að nýjustu upplýsingar um stöðu umsækjanda væru til staðar og mikilvægi þess að umsækjandi fengi úthlutað húsnæði vegna erfiðrar stöðu sinnar. Með húsnæðisumsókn hafi meðal annars verið lögð fram fylgigögn frá skammtímadvölinni að C og Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana þar sem fram komi mikilvægi þess að kærandi fái húsnæði við hæfi.

Í málaskrá velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hafi verið færðir dagálar varðandi tíð samskipti ráðgjafa við móður kæranda vegna málsins, ýmist í formi viðtala, tölvupósta eða símtala. Móður kæranda hafi ítrekað verið sendir tölvupóstar þar sem ráðgjafi hafi reynt að upplýsa um stöðuna eins og unnt hafi verið hverju sinni. Í því felist að upplýsa um að kærandi sé á biðlista eftir húsnæði og að þar komi fram að um erfiðar aðstæður sé að ræða og því lögð brýn áhersla á mikilvægi þess að hún fái úthlutað viðeigandi húsnæði. Kæranda og móður hennar hafi verið boðin viðtöl og fundir vegna málsins. Þá hafi deildarstjóri á miðlægri skrifstofu velferðarsviðs í málaflokki fatlaðs fólks oft setið þá fundi, auk ráðgjafa í málinu.

Í dag fái kærandi ýmis konar þjónustu frá Reykjavíkurborg í formi akstursþjónustu, skammtímadvalar og stoðþjónustu (liðveislu). Skammtímadvöl að C sé 10 sólarhringar í mánuði en við sérstakar aðstæður hafi kærandi dvalið fleiri daga að C. Kærandi æfi sund, keilu og frjálsar íþróttir. Stoðþjónusta í formi liðveislu sé þrjú skipti í viku (30 klukkustundir á mánuði). Reynt hafi verið að koma til móts við óskir kæranda og móður hennar varðandi starfsfólk sem sinni liðveislunni. Frá því í nóvember 2022 hafi starfsmaður sem þekki vel til þeirra mæðgna úr íþróttastarfi sinnt liðveislunni og hafi þjónustan gengið vel. Þá hafi kærandi starfað í fullu starfi hjá D í nokkur ár.

Kærandi hafi fengið þjónustu frá Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem sinni fólki, 18 ára og eldra, með alvarlegan taugaþroskavanda. Í nokkrum tilvikum hafi verið haldnir samráðsfundir með starfsfólki Reykjavíkurborgar og geðheilsuteyminu varðandi málefni kæranda. Kærandi hafi verið tekin inn í þjónustu teymisins í mars árið 2022 en í greinargerð frá teyminu frá apríl 2023 komi fram að þó að kærandi hafi mætt vel gagnist meðferð ekki sem skyldi vegna aðstæðna á heimili hennar.

Um félagslegt leiguhúsnæði gildi reglur Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði sem samþykktar hafi verið á fundi velferðarráðs þann 13. mars 2019 og á fundi borgarráðs þann 2. maí 2019. Reglur Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði hafi tekið gildi þann 1. júní 2019.

Í 2. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði sé félagslegu leiguhúsnæði skipt upp í fjóra flokka, þ.e. almennt félagslegt leiguhúsnæði, húsnæði fyrir fatlað fólk, húsnæði fyrir heimilislausa með miklar og flóknar þjónustuþarfir og þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Um framangreinda flokka húsnæðis sé fjallað í sérköflum reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði en mismunandi skilyrði eigi við um hvern flokk húsnæðis. Frekari skilgreiningu á húsnæði fyrir fatlað fólk sé að finna í 3. mgr. 2. gr. reglnanna en þar segi meðal annars að húsnæði fyrir fatlað fólk sé íbúðarhúsnæði sem gert hafi verið aðgengilegt fyrir tiltekna notkun eða skilgreint sérstaklega fyrir tiltekinn hóp fatlaðs fólks.

Með húsnæði fyrir fatlað fólk sé átt við húsnæðisúrræði í skilningi reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Húsnæði fyrir fatlað fólk skiptist í sértækt húsnæði fyrir fatlað fólk og húsnæði með stuðningi. Sértækt húsnæði fyrir fatlað fólk sé ætlað þeim sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum fötlunar og þurfi umfangsmikla aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili. Þá sé húsnæði með stuðningi ætlað þeim sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum fötlunar og þurfi nokkurn stuðning við að geta búið á eigin heimili. Sérstaklega sé fjallað um húsnæði fyrir fatlað fólk í III. kafla reglnanna.

Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis fari eftir reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og fari fram á sérstökum fundum úthlutunarteyma. Í 19. gr. reglnanna komi fram að miðstöðvar Reykjavíkurborgar leggi faglegt mat á þær umsóknir sem metnar hafi verið samkvæmt matsviðmiðum með reglunum. Úthlutunarteymi félagslegs leiguhúsnæðis forgangsraði umsóknum frá miðstöðvum og úthluti húsnæði samkvæmt reglunum. Forgangsröðun taki mið af faglegu mati ráðgjafa og úthlutunarteymis ásamt stigagjöf samkvæmt matsviðmiðum reglnanna. Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis byggi á gögnum sem liggi fyrir á úthlutunardegi og beri að uppfæra öll gögn miðað við stöðu umsækjanda á þeim tíma. Einnig beri eftir atvikum að framkvæma endurmat samkvæmt matsviðmiðum. Umsækjanda skuli tilkynnt skriflega um ef endurmat leiði til breytinga á stigagjöf.

Í 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sé vikið að málshraða og þar komi fram að ákvarðanir í málum skuli teknar svo fljótt og unnt sé. Þá komi fram í 3. mgr. 9. gr. að þegar fyrirsjáanlegt sé að afgreiðsla máls muni tefjast beri að skýra aðila máls frá því og skuli þá upplýst um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Í 4. mgr. 9. gr. laganna komi fram að dragist afgreiðsla máls óhæfilega sé heimilt að kæra það til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verði kærð til.

Samþykki á umsókn kæranda um húsnæði fyrir fatlað fólk sé stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Sveitarfélagið hafi því þegar viðurkennt rétt kæranda til að fá úthlutað húsnæðisúrræði, enda hafi hún verið sett á biðlista eftir slíku úrræði. Það að sveitarfélagið hafi ekki veitt kæranda húsnæði innan ákveðins tímafrests heldur forgangsraðað umsækjendum með hliðsjón af þjónustuþörf þeirra og framboði slíks úrræðis feli ekki í sér stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga. Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis feli hins vegar í sér stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 8. mgr. 19. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði, og í þeim tilfellum sé því um að ræða að aftur verði tekin stjórnvaldsákvörðun í málinu.

Jafnvel þótt sveitarfélagið hafi viðurkennt rétt kæranda til að fá úthlutað húsnæði fyrir fatlað fólk felist ekki í þeirri stjórnvaldsákvörðun að veita beri kæranda umrætt úrræði með skilyrðislausum og tafarlausum hætti. Engin lagaákvæði mæli fyrir um slíka skyldu eða um viðmiðunartímafrest í þessu sambandi, enda verði að telja að slíkt fyrirkomulag væri með öllu óraunhæft. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt á biðlista eftir húsnæði og ekki sé um að ræða fortakslausan rétt til að fá úthlutað húsnæði strax.

Umsækjendum um húsnæði fyrir fatlað fólk standi ýmis þjónusta til boða á meðan á biðtíma standi en nauðsynlegt sé að meta í hverju tilfelli hvaða þjónusta henti viðkomandi umsækjanda. Kærandi hafi á biðtíma fengið þjónustu í formi akstursþjónustu, stuðningsþjónustu (liðveislu), skammtímadvalar og ráðgjafar.

Í 9. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir komi fram að fatlað fólk eigi rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem geri því kleift að búa á eigin heimili og stuði að fullri aðlögum þess og þátttöku í samfélaginu. Af orðalagi ákvæðisins leiði að fatlað fólk, sem uppfylli skilyrði sveitarfélags til að fá sértækt húsnæðisúrræði, kunni að þurfa að bíða í nokkurn tíma eftir því að fá úthlutað slíku úrræði. Með hliðsjón af framangreindu sé því alfarið hafnað að biðtími kæranda eftir sértæku húsnæðisúrræði sé óásættanlegur eða gangi með einhverjum hætti í berhögg við 4. mgr. 9. gr. laga nr. 37/1993.

Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir veiti sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau veiti fötluðu fólki í samræmi við markmið laganna og hvernig aðgengi fatlaðra einstaklinga að þeirri þjónustu skuli tryggt. Ekki sé unnt að ráða af lögunum nema að litlu leyti hver hinn efnislegi réttur íbúa sveitarfélags sé í þessum málum, enda ráðist hann aðallega af ákvörðun hvers sveitarfélags.

Í samræmi við ákvæði 78. gr. stjórnarskrárinnar sé sveitarfélögum tryggður sjálfstjórnarréttur og í honum felist meðal annars það að sveitarfélög ráði hvernig útgjöldum sé forgangsraðað í samræmi við lagaskyldur og áherslur hverju sinni. Stjórnarskráin leggi ekki ríkari eða víðtækari skyldur á herðar sveitarfélögum í þessum efnum heldur en mælt sé fyrir um í fyrrnefndum sérlögum. Með hliðsjón af þeirri sjálfstjórn sem sveitarfélögum sé veitt setji þau sér sínar eigin reglur um rétt íbúa á grundvelli laganna, þar á meðal um umfang og útfærslu þjónustu við fatlað fólk. Lögunum sé því einungis ætlað að tryggja rétt fólks en ekki skilgreina hann, enda sé það verkefni hvers sveitarfélags. Því geti einstaklingar ekki gert kröfu um ákveðna, skilyrðis- og tafarlausa þjónustu heldur helgist framboð hennar af því í hvaða mæli sveitarfélagi sé unnt að veita þjónustuna. Í samræmi við framangreint hafi Reykjavíkurborg sett reglur um félagslegt leiguhúsnæði.

Ljóst sé að uppbygging á húsnæði taki langan tíma. Ekki sé horft til aldurs umsóknar við úthlutun heldur raðist þeir fremst í forgangsröðun sem séu í mestri þörf fyrir húsnæðið þegar úthlutun eigi sér stað. Þá hafi ýmis önnur atriði áhrif í þessu sambandi, svo sem ef brottfall af biðlista hafi ekki verið jafn mikið og áætlað hafi verið í upphafi. Það sem geti einnig haft áhrif séu flutningar fólks úr öðrum sveitarfélögum til Reykjavíkur, auk þess sem koma flóttafólks og fleiri hópa geti haft áhrif á biðlistann. Tafir á framkvæmdum geti einnig orðið vegna ákvæða í skipulagslögum og grenndarsjónarmiða af hálfu íbúa. Þá beri að horfa til þess að ekki sé ætíð unnt að fá framkvæmdaraðila til að reisa húsnæði og byggist það á efnahagsástandi í samfélaginu á hverjum tíma. Auk þess geti afhending verktaka á húsnæði til borgarinnar tafist af ýmsum orsökum.

Þann 7. nóvember 2018 hafi tekið gildi breytingar á reglugerð nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk en þá hafi þrjár nýjar greinar bæst við reglugerðina. Í 8. til 10. gr. reglugerðar um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk sé nú kveðið á um biðlista, röðun á biðlista auk samráðs og úrræða á biðtíma. Upphafleg umsókn kæranda um húsnæði fyrir fatlað fólk hafi verið samþykkt áður en framangreindar breytingar hafi tekið gildi. Kærandi sé nú á bið eftir sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk í þjónustuflokki II. Áætlað sé að næsti íbúðarkjarni í þjónustuflokki II opni árið 2024, sbr. uppbyggingaráætlun sértækra húsnæðisúrræða fyrir fatlað fólk sem hafi verið samþykkt á fundi borgarráðs þann 24. ágúst 2017. Þann 11. ágúst 2022 hafi á fundi borgarráðs verið samþykkt endurskoðuð uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk en þar sé gert ráð fyrir 20 íbúðakjörnum og þar af sex íbúðakjörnum fyrir einstaklinga með þroskahömlun og skyldar raskanir í þjónustuflokki II á árunum 2023 til 2030. Umsókn kæranda sé á virkri bið eftir húsnæði fyrir fatlað fólk hjá Reykjavíkurborg en ekki sé hægt að fullyrða hvenær að úthlutun komi en vonast sé til þess að það verði sem allra fyrst. Unnið sé að því að útvega kæranda húsnæði út frá þeim uppbyggingaráætlunum sem séu í gildi í málaflokki fatlaðs fólks.

Með hliðsjón af öllu framansögðu sé ekki unnt að fallast á að brotið hafi verið gegn 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga þar sem fyrir liggi að umsókn kæranda hafi verið samþykkt á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræði. Þegar til úthlutunar komi sé um að ræða aðra stjórnvaldsákvörðun í málinu, sbr. 8. mgr. 19. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Því hafi ekki dregist óhæfilega að afgreiða mál kæranda þar sem um tvær aðskildar stjórnvaldsákvarðanir sé að ræða. Þá sé rétt að geta þess að í samræmi við 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi ráðgjafi upplýst kæranda reglulega í viðtölum að tafir yrðu á úthlutun en unnið væri að því að útvega kæranda húsnæði. Lögð sé áhersla á að virða þá frumkvæðisskyldu sem lögð sé á herðar sveitarfélögum og fram komi í 32. gr. laga 38/2018. Einstaklingsmiðuð upplýsingagjöf fari fram með beinum samskiptum ráðgjafa á miðstöð við viðkomandi sem oftast séu í formi reglulegra viðtala, þar sem leitast sé við að svara fyrirspurnum sem fram komi hjá viðkomandi hverju sinni. Staða máls sé könnuð fyrir hvert viðtal og reynt sé eftir megni að koma til móts við þjónustuþarfir umsækjanda á biðtímanum. Ráðgjafar hafi einnig samskipti við viðkomandi með tölvupóstum og símtölum. Í þessu samhengi sé vísað til meðfylgjandi dagála úr málaskrá velferðarsviðs Reykjavíkurborgar varðandi tíð samskipti við móður kæranda vegna málsins. Rétt sé að fram komi að á næstu vikum sé fyrirhugað að senda bréf til umsækjenda um húsnæði fyrir fatlað fólk þar sem fram komi hver staðan sé á umsókn viðkomandi umsækjanda með hliðsjón af uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar áskilji sér rétt til að framvísa slíku bréfi til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna máls kæranda.

Með hliðsjón af framangreindu sé það mat Reykjavíkurborgar að málsmeðferð í máli kæranda hafi verið í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að kærandi hafi verið upplýst um þær tafir sem hafi orðið á afgreiðslu á máli hennar. Ljóst sé að Reykjavíkurborg hafi ekki brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæðum reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk eða ákvæðum annarra laga.

Í svari Reykjavíkurborgar vegna athugasemda kæranda er ítrekað það sem fram komi í greinargerð velferðarsviðs að einstaklingsmiðuð upplýsingagjöf fari fram með beinum samskiptum ráðgjafa á miðstöð við viðkomandi sem oftast séu í formi reglulegra viðtala, þar sem leitast sé við að svara fyrirspurnum sem fram komi hjá viðkomandi hverju sinni. Staða máls sé könnuð fyrir hvert viðtal og reynt sé eftir megni að koma til móts við þjónustuþarfir umsækjanda á biðtímanum. Ráðgjafar hafi einnig samskipti við viðkomandi með tölvupóstum og símtölum. Reynt hafi verið eftir fremsti megni að upplýsa kæranda um stöðu mála hverju sinni, þótt slíkt hafi reynst erfitt þar sem óljóst hafi verið hvenær kærandi myndi fá úthlutað húsnæði fyrir fatlað fólk hjá Reykjavíkurborg. Almennt sé lögð áhersla á að virða þá frumkvæðisskyldu sem lögð sé á herðar sveitarfélaga og fram komi í 32. gr. laga nr. 38/2018.

Þá hafi félagsráðgjafi reynt eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir kæranda og koma óskum hennar í réttan farveg. Vert sé að benda á að kærandi hafi fyrst fengið samþykkta umsókn um stuðningsþjónustu í formi liðveislu þann 22. desember 2004 sem hafi verið endurnýjuð á hverju ári síðan þá. Ef óskað sé eftir gögnum sem staðfesti framangreint verði þau góðfúslega veitt en meðfylgjandi séu gögn sem sýni að stuðningsþjónusta í formi liðveislu hafi verið samþykkt þann 22. desember 2004 og 19. október 2022. Að mati velferðarsviðs hafi því verið farið að ákvæðum 34. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eins og kostur hafi verið.

Í greinargerð velferðarsviðs í máli kæranda, dags. 10. ágúst 2023, hafi komið fram að fyrirhugað væri að senda bréf til umsækjenda um húsnæði fyrir fatlað fólk þar sem tilgreint yrði hver staða á umsókn viðkomandi umsækjanda væri með hliðsjón af uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk. Kærandi hafi fengið sent bréf vegna stöðu sinnar á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði, dags. 18. ágúst 2023, frá úthlutunarteymi húsnæðis fyrir fatlað fólk á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Í kjölfar þess að haustið 2022 hafi Reykjavíkurborg fallið frá áfrýjun til Landsréttar á dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli E-2712/2020, sem hafi verið kveðinn upp þann 16. júní 2021, hafi verið hafin vinna við að útbúa einstaklingsbundnar áætlanir fyrir einstaklinga sem séu á biðlista hjá Reykjavíkurborg eftir húsnæði fyrir fatlað fólk. Með hliðsjón af uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk hafi þurft að fara yfir biðlista um húsnæði fyrir fatlað fólk og áætla hvenær viðkomandi einstaklingur myndi fá úthlutað húsnæði en umrædd vinna hafi tekið nokkurn tíma. Sambærileg bréf hafi ekki áður verið send einstaklingum sem bíði eftir húsnæði fyrir fatlað fólk hjá Reykjavíkurborg en þau séu send til að upplýsa einstaklinga um stöðu þeirra á biðlista. Með vísan til framangreinds liggi nú fyrir einstaklingsbundin áætlun í máli kæranda, sem hafi verið send kæranda með bréfi þann 18. ágúst 2023, þar sem fram komi að gert sé ráð fyrir að kærandi fái úthlutað húsnæði á árinu 2024. Fyrirhugað sé að slík bréf verði send einstaklingum sem séu á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlað fólk á vegum Reykjavíkurborgar reglulega í framtíðinni.

Að lokum séu ítrekuð þau sjónarmið sem fram komi í greinargerð velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 10. ágúst 2023.

 

 

IV.  Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um afgreiðslu Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um sértækt húsnæðisúrræði frá 21. janúar 2015. Umsóknin var samþykkt með ákvörðun þjónustumiðstöðvar, dags. 11. júní 2015. Kærandi bíður enn úthlutunar húsnæðis og kærir því drátt á afgreiðslu málsins, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en samkvæmt ákvæðinu er heimilt að kæra til æðra stjórnvalds óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls.

Í 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 kemur fram sú meginregla að ákvarðanir í málum innan stjórnsýslunnar skuli teknar eins fljótt og auðið er. Í ákvæðinu kemur ekki fram hvaða tímafrest stjórnvöld hafa til afgreiðslu mála en af því leiðir að aldrei má vera um ónauðsynlegan drátt á afgreiðslu máls að ræða. Með hliðsjón af þessari meginreglu verður að telja að stjórnvöldum sé skylt að haga afgreiðslu þeirra mála sem þau fjalla um í samræmi við þessa meginreglu og gera eðlilegar ráðstafanir til þess að þau séu til lykta leidd af þeirra hálfu eins fljótt og unnt er. Hvað talist getur eðlilegur afgreiðslutími verður að meta í hverju tilviki fyrir sig. Þannig verður að líta til umfangs máls og atvika hverju sinni, auk þess sem mikilvægi ákvörðunar fyrir aðila getur einnig haft þýðingu í þessu sambandi.

Í III. kafla laga nr. 38/2018 er fjallað um búsetu en þar segir í 1. mgr. 9. gr. að fatlað fólk eigi rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Í 2. mgr. 9. gr. kemur fram að fatlað fólk eigi rétt á því að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra. Óheimilt sé að binda þjónustu við fatlað fólk því skilyrði að það búi í tilteknu búsetuformi.

Í 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir kemur fram að ákvörðun um að veita þjónustu skuli taka svo fljótt sem kostur er. Sé ekki unnt að hefja þjónustu strax og umsókn er samþykkt skal tilkynna umsækjanda um ástæður þess og hvenær þjónustan verði veitt. Ef fyrirséð er að þjónustan sem sótt var um geti ekki hafist innan þriggja mánaða frá samþykkt umsóknar skal leiðbeina umsækjanda um þau úrræði sem hann hefur á biðtíma og aðra þjónustu sem er í boði. Í 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk er kveðið á um biðlista eftir húsnæðisúrræði. Þar segir:

„Nú hefur umsókn um húsnæðisúrræði samkvæmt reglugerð þessari verið samþykkt en ljóst er að ekki muni unnt að útvega það innan þriggja mánaða, skal þá tilkynna umsækjanda um ástæður tafanna og hvenær fyrirhugað sé að húsnæðisúrræði geti verið tilbúið. Þá skal setja umsókn á biðlista. Þegar umsækjanda er tilkynnt um að hann sé kominn á biðlista skal unnin áætlun um útvegun viðeigandi húsnæðisúrræðis og hvort og þá hvers konar annað úrræði standi umsækjanda til boða á biðtíma.

Sveitarfélag skal leggja biðlista eftir húsnæðisúrræðum til grundvallar við gerð húsnæðisáætlunar samkvæmt lögum um húsnæðismál.“

Í 9. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um röðun á biðlista. Þar segir:

„Raða skal á biðlista eftir sömu sjónarmiðum og koma fram í matsviðmiðum sveitarfélaga. Sveitarfélög skulu kveða skýrt á um það í reglum sínum á hvaða matsviðmiðum skuli byggt, hvernig samþykktum umsóknum skuli forgangsraðað eftir þörf viðkomandi, lengd biðtíma eftir húsnæðis­úrræði og öðrum þeim úrræðum sem standa til boða á biðtíma. Við mat á þörf og forgangi skal sveitarfélag líta til sömu viðmiða og varðandi úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði, þar með talið núverandi húsnæðisaðstöðu umsækjanda og hversu brýna þörf viðkomandi hefur fyrir viðeigandi húsnæðisúrræði.“

Þá segir í 10. gr. reglugerðarinnar að sveitarfélag skuli tryggja reglubundið samráð við umsækjanda á biðtíma. Umsækjandi skuli þá upplýstur um stöðu á biðlista, áætlaða lengd biðtíma og þau úrræði sem honum standi til boða á biðtímanum.

Líkt og að framan greinir var umsókn kæranda um sértækt húsnæðisúrræði samþykkt á biðlista með ákvörðun þjónustumiðstöðvar frá 11. júní 2015. Reykjavíkurborg hefur vísað til þess að kærandi hafi á biðtíma fengið þjónustu í formi skammtímadvalar, stoðþjónustu, akstursþjónustu og ráðgjafar. Í málaskrá velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hafi verið færðir dagálar varðandi tíð samskipti ráðgjafa við móður kæranda vegna málsins, ýmist í formi viðtala, tölvupósta eða símtala. Móður kæranda hafi ítrekað verið sendir tölvupóstar þar sem ráðgjafi hafi reynt að upplýsa um stöðuna eins og unnt hafi verið hverju sinni. Þá hefur Reykjavíkurborg vísað til þess að uppbygging á húsnæði taki langan tíma og að ýmislegt geti haft áhrif á biðtímann.

Úrskurðarnefnd getur fallist á að skortur á viðeigandi húsnæði fyrir kæranda valdi töf á úthlutun en að mati nefndarinnar getur það ekki réttlætt bið um ókomna tíð án þess að fyrir liggi einhver áætlun í þeim efnum eða virk upplýsingagjöf til umsækjanda um stöðu hans og skyldur. Verður þannig að gera þá kröfu til sveitarfélagsins að markvisst sé unnið að lausn í máli kæranda og að gerðar séu ráðstafanir til að hann fái viðeigandi búsetuúrræði eins fljótt og unnt er, sbr. lög nr. 38/2018 og reglugerð nr. 1035/2018.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi verið tilnefnd til úthlutunar húsnæðis á biðtíma. Þá bera gögn málsins ekki með sér að það hafi verið unnið sérstaklega í húsnæðismálum kæranda á meginþorra biðtíma en nú eru liðin meira en átta ár frá því að umsókn hennar var samþykkt. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að afgreiðsla máls kæranda hafi dregist óhæfilega í skilningi 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga.

Með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 18. ágúst 2023, var kærandi upplýst um stöðu umsóknar hennar á biðlista eftir húsnæði. Þar kemur meðal annars fram að miðað við uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk sé gert ráð fyrir að hún fái úthlutað húsnæði á árinu 2024. Samkvæmt þessu hefur Reykjavíkurborg nú fyrst gert einstaklingsbundna áætlun um útvegun húsnæðis og upplýst kæranda um stöðu hennar á biðlistanum. Þrátt fyrir það er lagt fyrir sveitarfélagið að hraða afgreiðslu málsins og veita kæranda samþykkta þjónustu svo fljótt sem auðið er. Ef fyrirséð er að á afgreiðslu málsins verði frekari tafir ber sveitarfélaginu að skýra kæranda með reglubundnum hætti frá því og upplýsa um ástæður tafanna og auk þess hvenær ákvörðunar um úthlutun viðeigandi húsnæðis sé að vænta, verði breytingar á núverandi áætlun, sbr. 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Afgreiðsla Reykjavíkurborgar í máli A, var ekki í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Lagt er fyrir Reykjavíkurborg að hraða afgreiðslu máls kæranda og taka ákvörðun um úthlutun viðeigandi húsnæðis svo fljótt sem auðið er.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum